60 milljónir í jólabónus 8. desember 2014 15:00 Dregið verður í Happdrætti Háskóla Íslands þann 10. desember næstkomandi.
Það er ekki bara Sigmundur sem kann að dreifa út peningum um allar jarðir. Þann 10. desember næstkomandi mun einn heppinn miðaeigandi hljóta hvorki meira né minna en 60 milljónir í kærkominn jólabónus þegar Milljónavelta Happdrættis Háskóla Íslands gengur út. Það sem af er þessu ári hafa 908.405.000 krónur nú þegar verið greiddar út, algjörlega skattfrjálst. Partíið er þó ekki búið því í þessum síðasta útdrætti ársins munu 135 milljónir bætast í þennan hóp og dreifast til miðaeiganda happdrættisins.Í tilefni 80 ára afmælis HHÍ var heppnum miðaeigendum komið skemmtilega á óvart í sumar.Eins gleðilegt og það er að hljóta happdrættisvinning, stóran sem smáan, dreymir líklega flesta um að fá stóra pottinn, 60 milljónirnar, á miðann sinn. Spurningin er hins vegar hvernig maður dettur í slíkan lukkupott? Til að byrja með væri ekki vitlaust að skella sér yfir á Facebook-síðu happdrættisins og uppgötva hver þín persónulega lukkutala er. Eins og allir vita þá er afar mikilvægt að leggja sig fram við að setja saman hið fullkomna óskanúmer og þar kemur lukkutalan sér einstaklega vel. Tryggir viðskiptavinir happdrættisins hafa tekið þátt með sínu óskanúmeri ár eftir ár. Það er ekki skrýtið enda eru vinningslíkurnar í Happdrætti Háskólans með því besta sem völ er á en miðaeigendur mega eiga von á því að hljóta vinning annað hvert ár að meðaltali. Ekki slæmar líkur, eða hvað? Því er ekki að neinu að huga nema þessu einu: Hvað myndir þú gera við 60 milljónir sléttar?
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira