Harði pakkinn í ár? 1. desember 2014 16:00 Richard Richardsson, framkvæmdastjóri Emobi, og Bjarki Guðmundsson sölumaður. Ernir
Nýjasti snjallsíminn frá LG, sem ber heitið LG G3, er með réttu snjallsími ársins 2014 en hann kom á markað fyrr á þessu ári. Hann hefur hrifsað til sín öll helstu verðlaun í greininni, þar á meðal hin eftirsóttu EISA verðlaun sem „Advanced smartphone 2014-2015”. LG G3 síminn leysir G2 símann af hólmi en er þó langt frá því að vera einhver minniháttar uppfærsla að sögn Bjarka Guðmundssonar, sölumanns hjá Emobi.is. „Nánast allir þættir G3 símans eru endurbættir eða uppfærðir. Þar má fyrst nefna Snapdragon 801 fjórkjarna 2,5GHz örgjörva og 2 GB vinnsluminni auk þess sem hann styður allt að 128 GB microSD minniskort. Rafhlaðan á LG G3 símanum er líka mjög góð eða 3.000mAh.“ LG G3 síminn hefur líka frábæran QUAD HD skjá að sögn Bjarka. „Hann er mjög skýr og bjartur enda með upplausn upp á 2560 x 1440. Einnig er umgjörð símans mjög þunn svo að hann falli vel í hendi því þó skjárinn sé 5,5 tommur virkar hann alls ekki of stór. Einnig má nefna að síminn er með Knock Code skjálæsingu, Smart lyklaborð og svo styður hann QI þráðlausa hleðslu.“LG G3 er á flottu tilboði hjá Emobi.is á einungis 79.900 kr.Síminn inniheldur tvær myndavélar eins og algengt er með nýja snjallsíma. „Aðalmyndavélin er 13 megapixla með IOS+ hristivörn. Hún er með Laser Auto Focus sem styttir tímann sem þarf til að ná góðri mynd auk þess að hægt er að taka margar góðar myndir á örskömmum tíma. Á framhlið hans er síðan minni myndavél sem hægt er að nýta í til dæmis myndsímtöl og sjálfsmyndir(e. selfie).“ Stutt er síðan tilkynnt var að LG G3 fengi Android 5.0 „Lollipop” uppfærsluna. „En það eru vitanlega mjög sterk skilaboð til þeirra viðskiptavina sem eiga LG G3 símann, vitandi að þeir munu fyrstir njóta ýmissa nýjunga og uppfærslna.“ LG G3 er á flottu tilboði hjá Emobi.is á einungis 79.900 kr. Allar nánari upplýsingar má finna á www.emobi.is.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira