Rússnesk sönglög og íslenskur vornæturóður Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. apríl 2014 15:00 Kórinn minnist Jóns frá Ljárskógum á vortónleikunum í Langholtskirkju, vegna aldarafmælis hans. Mynd/úr einkasafni
Væntanlegt söngferðalag Karlakórs Reykjavíkur til Pétursborgar síðar á árinu litar dagskrá vortónleika hans sem nú eru að bresta á. Þar verða rússnesk lög sungin en líka íslensk og annarra þjóða. Titill tónleikanna, Kom vornótt og syng, er sóttur í kvæði eftir Jón frá Ljárskógum sem sungið er við lag eftir Frédéric Chopin. Jóns verður minnst sérstaklega á tónleikunum þar sem öld er liðin frá fæðingu hans. Hann léði Karlakór Reykjavíkur rödd sína á fjórða áratug síðustu aldar en er þekktastur fyrir söng sinn í MA-kvartettinum. Einsöngvarar á tónleikunum eru tveir. Annars vegar Natalía Druzin Halldórsdóttir mezzósópran sem er af rússneskum ættum og hins vegar Benedikt Gylfason drengjasópran. Anna Guðný Guðmundsdóttir er við flygilinn og stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson. Tónleikarnir verða í Langholtskirkju þrjú fyrstu virku kvöld næstu viku klukkan 20 og þeir síðustu laugardaginn 12. apríl klukkan 15.
Menning Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Superstore-leikari látinn Lífið Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira