Tónlistin skekur í manni hjartatuðruna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. apríl 2014 12:30 Kristján sem Brynjólfur biskup milli þeirra Þorgerðar Sólar og Alexöndru Chernyshova í hlutverkum Ragnheiðar á ólíkum aldri. Mynd/Jón Hilmar „
Það er skemmtileg tilbreyting að láta dramatískan tenór syngja Brynjólf biskup,“ segir Kristján Jóhannsson söngvari um hlutverk sitt í óperunni Skáldið og biskupsdóttirin. Tónlistin er eftir Alexöndru Chernyshovu sem syngur hlutverk Ragnheiðar biskupsdóttur. Ásgeir Páll Ágústsson túlkar Hallgrím Pétursson en sýningin er samin og sett upp af Guðrúnu Ásmundsdóttur í tilefni 400 ára afmælis sálmaskáldsins. Hvernig líkar Kristjáni að vera í hlutverki Brynjólfs biskups, þess mikla harðjaxls? „Ég er búinn að fara í gegnum hlutverkið með Guðrúnu Ásmundsdóttur og hún kveikti ljós hjá mér í sambandi við Brynjólf. Þegar hann er skoðaður ofan í kjölinn þá er hann fullur væntumþykju í garð dóttur sinnar, les henni bænirnar á hverju kvöldi sem barni og hlýjar henni á fótunum. Hann er undir þvingunum þegar hann grípur til þeirra ráða að láta hana sverja eiðinn, telur sig verða að verja heiður kirkjunnar. Svo blygðast hann sín fyrir það sem átti sér stað og tekur það óskaplega nærri sér.“ Kristján segir flytjendurna fara með talaðan texta auk söngsins og segir Guðrúnu Ásmunds vera snilldarsögumann. „Sjálfum finnst mér þetta vera sungið leikhúsverk,“ segir hann og bætir við: „Tónlistin skekur í manni hjartatuðruna og hljómar íslenskt í eyrum.“ Skáldið og biskupsdóttirin verður frumflutt í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd annað kvöld klukkan 20. Önnur sýning er á laugardagskvöld á sama tíma.
Menning Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Superstore-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira