Enginn Íslendingur haft eins mikil áhrif Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. apríl 2014 10:00 Karl ásamt konu sinni Kristínu Guðjónsdóttur.
Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup, er höfundur nýrrar myndskreyttrar bókar um lífshlaup Hallgríms Péturssonar sem forlagið Ugla gefur út. „Ég var í undirbúningshópi hjá Hallgrímskirkju vegna afmælisárs Hallgríms og það vantaði stutt og laggott yfirlit yfir ævi hans, kveðskap og áhrif á menningu okkar og trú. Það var gaman að vinna að því og velja myndir sem varpa ljósi á sögu hans,“ segir Karl og bætir við að efnið sé komið út, annars vegar sem bæklingur á íslensku, ensku, þýsku og dönsku og í bókarformi. Bókin er aðeins 32 blaðsíður í A5-broti. Var ekki erfitt að koma hinni mögnuðu sögu sálmaskáldsins fyrir á svo fáum síðum? „Jú, það þurfti ansi mikið að velja og hafna því þarna er bara stiklað á því stærsta. Þetta er mögnuð lífssaga og ég fullyrði að enginn Íslendingur hefur haft önnur eins áhrif á eina þjóð eins og Hallgrímur Pétursson.“
Menning Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira