Himnastigatríóið snýr aftur 21. maí 2014 12:30 Himnastigatríóið: Sigurður Flosason, Eyþór Gunnarsson og Lennart Ginman heiðra Billie Holiday í kvöld.
Tríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar, Himnastigatríóið, heldur tónleika í Hannesarholti í kvöld klukkan 20.30. Tónleikarnir eru tileinkaðir söngkonunni Billie Holiday en hún hefði orðið 99 ára þann 7. apríl síðastliðinn. Á efnisskrá verða lög sem Billie hljóðritaði og tengjast henni sterklega. Tríóið skipa, auk Sigurðar, þeir Eyþór Gunnarsson á píanó og danski kontrabassaleikarinn Lennart Ginman, en hann kemur hingað til lands sérstaklega vegna þessara tónleika. Tríóið er stundum kennt við sinn fyrsta disk, Himnastigann, sem kom út árið 1999 og fékk frábæra dóma. Tveimur árum síðar kom annar diskur, Djúpið, sem hlaut einnig mjög góðar viðtökur. Himnastigatríóið snýr nú aftur eftir langt hlé og einbeitir sér, nú sem fyrr, að túlkun klassískra djassstandarda með áherslu á lifandi og ljóðrænt samspil. Þess má geta að Sigurður Flosason var kjörinn djassleikari ársins á íslensku tónlistarverðlaununum í febrúar sem leið og Eyþór Gunnarsson hlaut, ásamt félögum sínum í Mezzoforte, heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna. Lennart Ginman er einn af fremstu kontrabassaleikurum Dana, bæði vel þekktur og virtur í dönsku djasslífi. Bille Holiday er í hópi áhrifamestu söngkvenna djassins. og flutti bæði klassíska standarda og eins lög sem samin voru sérstaklega fyrir hana. Tríóið mun á tónleikunum í kvöld flytja blöndu af hvoru tveggja.
Menning Mest lesið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira