Vísur Svantes í Norræna húsinu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. ágúst 2014 12:30 Kormákur Vísur Svantes hafa loðað við hann síðan 1976.
Grátbroslegar vísur Svantes eftir danska skáldið Benny Andersen verða fluttar í Norræna húsinu 14. ágúst klukkan 20.20. Þær fjalla um örlög Svíans Svantes Svendsen sem bjó í Danmörku frá unga aldri eftir að hann varð viðskila við foreldra sína í ferjunni milli Svíþjóðar og Danmerkur. Kormákur Bragason túlkar Svante og leikur á gítar. „Ég kynntist þessu efni fyrst 1976 þegar ég var í lýðháskóla í Kungälv í Svíþjóð. Mér fannst músíkin flott og textarnir frábærir og Svante hefur loðað við mig síðan. Síðar var ég við kennslu í Kungälv ásamt dönskum götuleikhúsmanni. Við settum Svantesviser á fóninn og þá sagði hann: „Nú veit ég hvar þú hefur lært dönsku Kormákur.“ Þeir sem spila með Kormáki eru Karl Pétur Smith á slagverk, Einar Sigurðsson á kontrabassa, Helgi Þór Ingason á píanó og Eðvarð Lárusson á gítar. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og miðar eru seldir við innganginn.
Menning Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira