Réttir höfundar afhjúpaðir 4. október 2014 11:00 Kristín Ómarsdóttir er einn höfundanna sem eiga sögu í Styttri ferðum. En hvaða sögu? Vísir/Anton
Annað kvöld verður afhjúpað hverjir sömdu og þýddu sögurnar í þáttasafninu Styttri ferðum, sem út kom í vor í tímaritröðinni 1005. Listi yfir höfunda og þýðendur var raunar birtur í heftinu, en vísvitandi í rangri röð, og efnt til samkeppni um það hvaða texti tilheyrði hvaða höfundi. Uppátækið var tilraun í viðtökufræðum og hefur meðal annars leitt til þess að lítt kunnum höfundum hefur verið hampað en heimsþekktir höfundar hirtir af ritdómurum – algjörlega út frá textunum. Verðlaun í bókmenntagátunni verða afhent í nafnaveislu í Djúpinu, í kjallara Hornsins, annað kvöld klukkan 20. Þar koma enn fremur fram fimm af höfundum Styttri ferða og Jón Hallur Stefánsson frumflytur lag af þessu tilefni og réttu efnisyfirliti verður dreift til lesenda 1005. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis á þessa litlu textahátíð, sem er einn af viðburðum Lestrarhátíðar í október.
Menning Mest lesið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Lífið Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira