Gullsmiðir sýna í Hönnunarsafni Friðrika Benónýsdóttir skrifar 18. október 2014 14:00 Gripirnir á sýningunni eru unnir af fjörutíu gullsmiðum á ýmsum aldri.
Prýði er sýning á smíðisgripum meðlima í Félagi íslenskra gullsmiða sem opnuð verður í Hönnunarsafni Íslands í dag. Félag íslenskra gullsmiða heldur upp á níutíu ára afmæli sitt á þessu ári og er sýningin Prýði unnin í samstarfi félagsins og Hönnunarsafnsins af því tilefni. Á sýningunni eru gripir eftir fjörutíu gullsmiði sem voru gefnar frjálsar hendur að smíða fyrir sýninguna eða velja úr eigin safni. Gullsmiðirnir eru á ólíkum aldri, þeir sem unnið hafa við fagið í áratugi og byggt upp atvinnurekstur og tekið til sín lærlinga, svo og yngra fólk sem sýnir við hlið meistara sinna og hefur á síðustu árum skapað sér nafn og sérstöðu með þátttöku í fjölda sýninga og rekstri vinnustofa eða verslana. Nýútskrifaðir gullsmiðir eru einnig meðal sýnenda og þátttaka þeirra er mikilvægur hluti þess sem sýningunni er ætlað að gera, að varpa ljósi á þá breidd sem ríkir í íslenskri gullsmíði í dag. Sýningarnefndin var skipuð þeim Eddu Bergsteinsdóttur, Höllu Bogadóttur, Hörpu Þórsdóttur og Sif Ægisdóttur. Hönnun sýningarinnar var í höndum Helgu Sifjar Guðmundsdóttur.
Menning Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Superstore-leikari látinn Lífið Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira