Fjögur handrit og frímerki Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 10:00 Guðvarður ætlar meðal annars að giska á hversu fljótir menn voru að skrifa Flateyjarbók. Mynd/Jóhanna Ólafsdóttir „
Strangt til tekið komu út átta frímerki á árinu skreytt handritum, sex á Íslandi og tvö í Danmörku. Ég ætla að segja frá frímerkjunum og handritunum sem urðu fyrir valinu á þau,“ segir Guðvarður Már Gunnlaugsson, dósent við Árnastofnun, um fyrirlestur sem hann heldur í Þjóðminjasafninu klukkan 12.10 í dag, á fæðingardegi Árna Magnússonar handritasafnara. Sum frímerkjanna sem Guðvarður talar um eru gefin út í tilefni þess að Árni hefði orðið 350 ára í fyrra. Handritin eru úr danskri lögbók og Njálu. „Það vill svo vel til að eitt handrita Njálssögu er myndskreytt, það lá því beint við að taka mynd af því,“ segir hann. Íslandspóstur gaf út frímerki í sumar í tilefni af 800 hundruð ára afmæli Sturlu Þórðarsonar sagnaritara. „Sturla skrifaði meðal annars Hákonarsögu Hákonarsonar sem kallaður var „sá gamli“. Sú saga er úr Flateyjarbók og því er tekin mynd úr Flateyjarbók úr upphafi Hákonarsögu,“ segir Guðvarður. „Svo eru frímerki úr Íslensku teiknibókinni sem kom út í fyrra og ég segi aðeins frá þeim.“ Í viðbót kveðst Guðvarður aðeins ætla að tala um miðaldahandrit almennt og hversu snögga hann telur menn hafa verið að skrifa Flateyjarbók.
Handritasafn Árna Magnússonar Mest lesið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Ekki vottur af vöðvabólgu Lífið Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira