Nostrað við hvern hlut Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 15:00 Lára Gunnarsdóttir verðlaunahafi, Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistamaður sem hlaut viðurkenningu fyrir Möttulkviku, kökudisk á fæti, og Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar.
Þessir fuglar slógu í gegn hjá dómnefndinni. „Ég vinn eingöngu úr íslensku birki sem ég kaupi hjá Skógræktinni. Það hefur verið minn efniviður í tuttugu ár,“ segir Hólmarinn Lára Gunnarsdóttir, sem hlaut Skúlaverðlaunin á nýafstaðinni sýningu Handverks og hönnunar. Þau eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem var frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. „Handverksvinna mín hófst eiginlega um leið og verkefnið Handverk og hönnun var sett á laggirnar fyrir tuttugu árum og fór að auglýsa samkeppnir og sýningar. Þá hætti ég í myndsköpun sem ég hafði verið í fram að því,“ lýsir Lára sem lauk námi frá grafíkdeild Myndlista-og handíðaskólans „í gamla daga“, eins og hún orðar það. „Í mörg ár vann ég með grafík, teikningu, vatnsliti og fleira þar til ég sneri mér að því að móta hluti úr tré. Það er svo þægilegt að vera handverkskona og þurfa ekki að vera á stalli sem listamaður,“ segir hún glaðlega. „Það sem ég bý til er ekki fjöldaframleiðsla, heldur er nostrað við hvern hlut,“ segir hún og kveðst hafa selt í Safnabúð Þjóðminjasafnsins, Kirkjuhúsinu, Epal Design í Leifsstöð, í Stykkishólmi og á mörkuðum Handverks og hönnunar. Spurð hvort hún hafi selt alla sína framleiðslu síðustu tuttugu árin svarar hún: „Já, Handverk og hönnun leggur oft svolítið línurnar með því að gefa fólki kost á að senda inn hluti á sýningar sem hafa ákveðið þema. Nýsköpunin hjá mér hefur því stundum farið eftir þeim skilyrðum sem þar eru sett. Ég byrjaði að gera fugla í fyrra sem ég tálga og sýndi á Ráðhúsmarkaðinum í maímánuði í vor en þegar keppt er um Skúlaverðlaunin verða þátttakendur að koma með alveg nýja hluti sem ekki hafa sést áður. Því lagði ég hausinn í bleyti og bjó til þessa fugla sem hlutu náð fyrir augum dómnefndar.“ Lára kallar trémuni sína smávini og er með heimasíðuna smavinir.is.
Menning Mest lesið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira