Kjallaraspjall um Sjálfstætt fólk Friðrika Benónýsdóttir skrifar 19. nóvember 2014 10:00 Meðal frummælenda er Þorleifur Örn Arnarsson, leikstjóri uppfærslu Þjóðleikhússins á Sjálfstæðu fólki. Vísir/Arnþór
Kjallaraspjall um Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness fer fram í Stúdentakjallaranum í Háskóla Íslands í dag frá klukkan 17 til 18.30. Tilefnið er uppsetning Þjóðleikhússins á Sjálfstæðu fólki í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar, sem er jólasýning leikhússins í ár. Framsögumenn verða þau Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður, Símon Birgisson dramatúrgur og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri. Stjórnandi umræðna verður Brynja Þorgeirsdóttir, sjónvarpskona og framhaldsnemi í bókmenntafræði. Sjónum verður beint að aðlögun á skáldskap Laxness fyrir leikhús en einnig að bókmenntaverkinu sem slíku og hugmyndinni um sjálfstæði. Átökin á milli einangrunarhyggju og alþjóðahyggju verða tekin fyrir og hvernig persóna Bjarts í Sumarhúsum hefur verið notuð í ýmsum tilgangi í íslenskri rökræðu. Sem dæmi má nefna Bjart sem holdgervingu þeirra sem eru á móti Evrópusambandinu. Hvað er þetta frelsi og sjálfstæði sem Bjartur berst svo heitt fyrir? Umræðurnar eru skipulagðar af Stúdentakjallaranum í samstarfi við Torfhildi, nemendafélag bókmenntafræðinema, Menningarfélagið, nemendafélag framhaldsnema í Íslensku og menningardeild og Þjóðleikhúsið.
Menning Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira