Þrjú lög á Degi íslenskrar tónlistar 4. desember 2014 09:30 Lagið Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar verður flutt á morgun. VísirAnton
Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur á föstudag. Af því tilefni munu helstu útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11.15. Íslendingar geta því sameinast við viðtækin og sungið lög til heiðurs íslenskri tónlist. Markmiðið er að fá sem flesta til að kveikja á útvarpinu kl. 11.15 og syngja með. Tilvalið er að safnast saman á sal þar sem slíkur er til afnota til að allir geti sameinast í söng. Lögin sem urðu fyrir valinu í ár eru lag Sigfúsar Halldórssonar, Litla flugan, við texta Sigurðar Elíassonar, Reyndu aftur, lag og texti eftir Magnús Eiríksson og Þannig týnist tíminn, lag og texti eftir Bjartmar Guðlaugsson. Textar og gítargrip laganna eru aðgengileg á Facebook-síðu Syngjum saman!. Þátttakendur eru hvattir til þess að taka sönginn sinn upp á myndband og senda á Facebook-síðu Syngjum saman! í kjölfar viðburðarins. Dagur íslenskrar tónlistar og verkefnið Syngjum saman! eru haldin fyrir tilstuðlan hagsmunasamtaka tónlistarinnar undir formerkjum Samtóns.
Tónlist Dagur íslenskrar tónlistar Mest lesið Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira