Fagna útgáfu bókar í lokahófi Bismút Friðrika Benónýsdóttir skrifar 20. desember 2014 15:00 Bismút Sýningu Daníels Björnssonar lýkur í Kling & Bang á morgun. Mynd/ Kling & Bang
Lokahóf sýningar Daníels Björnssonar, Bismút, verður haldið í dag klukkan 15 í Kling & Bang galleríi. Einnig verður fagnað útgáfu á ritinu Hugleiðingar um verk Daníels Björnssonar og annað, sem byggt er á viðtölum sem Ingibjörg Sigurjónsdóttir tók við Daníel í tilefni sýningarinnar. Sýning Daníels Björnssonar, Bismút, hefur staðið yfir síðan 8. nóvember. Daníel teiknar upp sýningarrýmið með lituðu ljósi og stillir þar upp nýjum skúlptúrum úr brunni sínum. Verkin snerta á umbreytingum, enda dregur sýningin nafn sitt af frumefninu bismút sem er þungur, brothættur, hvítkristallaður málmur sem umbreytist við hitun í tilkomumikinn kristal í öllum regnbogans litum. Verk Daníels draga fram hið stöðuga ferli sem núningur tímans við efni, anda og aðstæður er, að því er fram kemur í tilkynningu frá galleríinu. Sýningin stendur til 21. desember. Opið er í Kling & Bang fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14 til 18 og er aðgangur ókeypis.
Menning Mest lesið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Myrkt ástarljóð til Íslands Menning Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira