Aðeins þrír Selfyssingar komust á blað gegn bikarmeisturunum Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. mars 2015 21:50 Varnartröllið Anna Úrsúla Guðmundsdóttirog markvörðurinn Íris Björk Símonardóttir skelltu í lás. vísir/vilhelm
Nýkrýndir bikarmeistarar Gróttu lögðu kampavínsbaðið til hliðar í kvöld þegar liðið mætti Selfossi í lokaleik 19. umferðar Olís-deildar kvenna. Það voru engir timburmenn í bikarmeisturunum sem unnu 21 marks sigur, 31-10, eftir að vera 18-5 yfir í hálfleik. Aðeins þrír Selfyssingar; Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Carmen Palamariu og Margrét Katrín Jónsdóttir, komust á blað á Nesinu í kvöld. Hrafnhildur Hanna, sem er jafnframt markahæst í deildinni með 137 mörk, var markahæst gestasnna með fimm mörk. Carmen Palamariu skoraði fjögur. Hjá Gróttu var Karólína Bæhrens markahæst með sex mörk en þær Laufey Ásta Guðmundsdóttir og Arndís María Erlingsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Grótta er á toppi Olís-deildarinnar með 34 stig, tveimur stigum á undan Stjörnunni. Selfoss er í áttunda sæti með 15 stig, stigi á undan HK í baráttunni um síðasta sætið í úrslitakeppninni.Mörk Gróttu: Karólína Bæhrenz Lárudóttir 6, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 4, Arndís María Erlingsdóttir 4, Lovísa Thompson 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Eva Margrét Kristinsdóttir 2, Anna Katrín Stefánsdóttir 2, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 2, Guðný Hjaltadóttir 2, Sunna María Einarsdóttir 1.Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 5, Carmen Palamariu 4, Margrét Katrín Jónsdóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira