Skotar skoruðu sex gegn Gíbraltar Anton Ingi Leifsson skrifar 29. mars 2015 17:54 Fletcher skoraði þrennu gegn Gíbraltar. vísir/getty
Skotland, Norður-Írland, Rúmenía og Albanía nældu sér í öll í þrjú stig, en leikið var í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer í Frakklandi árið 2016. Skotland lenti í engum vandræðum með Gíbraltar á heimavelli í dag, en lokatölur urðu 6-1. Gíbraltar skoruðu þó fyrsta mark sitt í sögu landsliðsins og var því heldur betur fagnað. Steven Fletcher skoraði sitt fyrsta mark síðan hann skoraði gegn Íslandi árið 2009, en hann skoraði með skalla eftir darraðadans í teignum. Skotar með tíu stig eftir fimm leiki í þriðja sætinu. Gíbraltar á botninum með 0 stig. Kyle Lafferty sá um að afgrreipa Finnland fyrir Norður Írland, en Lafferty skoraði bæði mörk Norður-Írana í 2-1 sigri. Þeir eru í öðru sætinu með tólf stig. Finnland er í því fjórða með fjögur stig. Í sama riðli sigruðu Rúmenar Færeyja, en Claudiu Keseru skoraði eina mark leiksins. Heppnisstimpill var yfir markinu, en Rúmenar eru á toppnum með 13 stig. Færeyjar eru í fimmta sætinu með þrjú stig. Albanía kom til baka og gegn Armeníu og náði í mikilvæg þrjú stig í I-riðli. Albanía er með sjö stig í öðru sæti eftir fjóra leiki, en Danmörk er á toppnum einnig með sjö stig. Armenía er á botninum með eitt stig.Skotland - Gíbraltar 6-1 1-0 Shaun Maloney (víti - 18.), 1-1 Lee Casciaro (20.), 2-1 Steven Fletcher (29.), 3-1 Shaun Malone (víti - 34.), 4-1 Steven Naismith (39.), 5-1 Steven Fletcher (77.), 6-1 Steven Fletcher (90.).Norður Írland - Finnland 2-1 1-0 Kyle Lafferty (33.), 2-0 Kyle Lafferty (38.), 2-1 Berat Sadik (90.).Rúmeníu - Færeyjar 1-0 1-0 Claudiu Keseru (21.).Albanía - Armenía 2-1 0-1 Yura Movsisyan (4.), 1-1 Megim Mavraj (77.), 2-1 Shkelzen Gashi (82.).
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Enski boltinn Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Fleiri fréttir Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Sjá meira