Hægist á bílasölu í Bandaríkjunum Finnur Thorlacius skrifar 27. mars 2015 11:19 Spáð er 4% aukningu Toyota og Honda bíla vestra en 5% minnkun í sölu Ford bíla. Enn heldur því velgengni japanskra bíla áfram í Bandaríkjunum.
Mars gæti orðið fyrsti mánuðurinn frá árinu 2009 þar sem salan yrði minni en í sama mánuði árið áður í Bandaríkjunum. Þetta eru fyrstu merki þess að bílasala vestanhafs sé að róast eftir eina lengstu vaxtarhrinu í sölu bíla þar í langan tíma. Það eru því síðustu dagar mánaðarins sem ráða því hvort mánuðurinn endar sölulægri en í fyrra, en allar líkur eru á því. Spá um 17 milljón bíla sölu í ár virðist þó ekki í hættu. TrueCar spáir því að salan verði 0,7% undir sölunni í fyrra og Kelly Blue Book spáir 0,3% minni sölu. Það sem slegið hefur á góðu sölu undanfarna mánuði er mikill snjór víða í Bandaríkjunum og hefur hann ekki hvatt bílkaupendur til þess að hópast á bílasölur. Mikill uppgangur í efnahagslífi Bandaríkjanna mun þó örugglega tryggja gott bílasöluár í ár þó svo tímabundin minnkun sölu vegna veðuraðstæðna hafi þau áhrif að mars slái líklega ekki við góðum marsmánuði í fyrra. Á móti minnkandi sölu kemur hærra meðalveð bíla sem seldir eru nú en fyrir ári síðan og er meðalverð bíla nú 30.530 dollarar og hefur aldrei verið hærra í marsmánuði. Afslættir bílaframleiðenda er enda lægri en fyrir ári síðan og skýrir það að einhverju leiti hátt meðalverð seldra bíla nú. Því virðast bílaframleiðendur ekki vera að elta aukna markaðshlutdeild sína með afsláttum eins og oft áður og vilja fremur hagnast meira af hverjum seldum bíl. Toyota og Honda spá 4% aukningar í sölu í mars en General Motors spáir engri aukningu og Ford spáir 5% minnkun. Þá er spáð minnkun sölu Nissan bíla. Fiat-Chrysler spáir 1% aukningu og markað það 60 mánaða aukningu í bílsölu hjá fyrirtækinu ef aukningin gengur eftir.
Mest lesið Búningsklefar minna á fatagám: „Þetta mun aldrei breytast, því miður“ Innlent Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Innlent Umferð stýrt eftir að ekið var á grindverk á Austurvegi Innlent Leigubílstjóri grunaður um stórfellda líkamsárás rekinn Innlent Óánægja með stjórnarandstöðu í hæstu hæðum Innlent Skorið á hjólbarða og spreyjað á bifreiðar Innlent Farþegi á bak og burt þegar björgunaraðilar mættu Innlent Vilja heimili á markað en ekki uppboð við nauðungarsölu Innlent Vill vita hvað Úkraínumenn vilja gera við bandarískar stýriflaugar Erlent Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Erlent