Opel Corsa verðlaunuð sem bestu kaupin Finnur Thorlacius skrifar 31. mars 2015 09:45 Karl-Thomas Neumann, stjórnarformaður Opel tók við verðlaununum “Best Buy Car of Europe árið 2015” fyrir Opel Corsa, úr hendi Ilja Seliktar, forseta AUTOBEST.
Opel Corsa var í sviðsljósinu í Zagreb, höfuðborg Króatíu á dögunum, við afhendingu á “AUTOBEST 2015” verðlaununum. Nýja Opel Corsan hreppti þar titilinn “Best Buy Car of Europe árið 2015”. Hann lagði af velli verðuga fulltrúa annarra framleiðenda, einsog Hyundai i20, Skoda Fabia og Citroen C4 Cactus. Karl-Thomas Neumann, stjórnarformaður Opel, sagði við það tækifæri: “Við hjá Opel erum afar stolt af AUTOBEST 2015 verðlaununum sem nýja Corsan okkar hlaut. Það er líka ljóst að viðskiptavinirnir eru sama sinnis. 120.000 pantanir hafa borist í hann frá frumsýningunni í París í október. Við erum þess fullviss að velgengni Corsa mun halda áfram, en bíllinn hefur selst í 12,4 milljónum eintaka á 32 árum. Dan Vardie, formaður dómnefndar, sem skipuð er bílasérfræðingum frá 15 ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu: “Nýja Corsan er framúrskarandi smábíll og sannarlega vel að þessari viðurkenningu komin. Það var samdóma álit allrar dómnefndarinnar. “ Framámenn hjá Opel hafa gefið út að tilkoma fimmtu kynslóðar Corsa sé til vitnis um þá öflugu markaðssókn sem standi yfir hjá Opel. Þar á bæ hafa menn boðað kynningu á 27 nýjum bílum og 17 nýjum vélum á markaðnum fyrir árið 2018.
Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent