Karaktersigur hjá Nordsjælland | Guðmundur átti stoðsendingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 17:07 Guðmundur lagði upp fyrra mark Nordsjælland. mynd/nordsjælland
Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í FC Nordsjælland báru 1-2 sigurorð af SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var þriðji sigur Nordsjælland í síðustu fjórum leikjum en liðið er komið upp í 4. sæti deildarinnar með 35 stig, jafnmörg og Randers sem er í því þriðja. David Moberg Karlsson kom Nordsjælland yfir á 7. mínútu eftir sendingu frá Guðmundi Þórarinssyni og mínútu síðar var staðan orðin 0-2 eftir að leikmaður SönderjyskE setti boltann í vitlaust mark. Heimamenn fengu vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks, auk þess sem Andreas Maxö fékk að líta rauða spjaldið. En David Jensen gerði sér lítið fyrir og varði spyrnu Eriks Marxen, þess hins sama og skoraði sjálfsmarkið í byrjun leiks. Silas Songani minnkaði muninn í 1-2 á 52. mínútu en einum færri héldu liðsmenn Nordsjælland út og fögnuðu mikilvægum sigri. Guðmundur spilaði allan leikinn fyrir Nordsjælland sem og Adam Örn Arnarson og þá kom Guðjón Baldvinsson inn á sem varamaður 14 mínútum fyrir leikslok. Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leikmannahópui Nordsjælland. Baldur Sigurðsson lék ekki með SönderjyskE vegna meiðsla.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu Arsenal - Crystal Palace | Síðasta lausa sætið í undanúrslitum „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Sjá meira