Opel Movano hlýtur titilinn "Green Van 2015“ Finnur Thorlacius skrifar 13. ágúst 2015 09:21 Opel Movano sendibílarnir.
Sendibíllinn Opel Movano tók gullið í keppninni „Green Van 2015“ og hafði þar betur en 15 keppinautar í flokki atvinnubíla sem eru undir sjö tonn að þyngd. Dómnefndin var skipuð sérfræðingum frá fagtímaritunum VerkehrsRundschau og Trucker sem voru sammála um að veita Opel Movano „Green Van 2015“ umhverfisverðlaunin fyrir lipurð, rými og hleðslueiginleika og síðast en ekki síst fyrir sparneytna CDTI, 2.3 l BiTurbo dísilvélina, sem eyðir einungis 8,5l/100km og hefur minnstu CO2 losun allra keppinautanna. Opel Movano var sá eini sem hlaut yfir 6,000 umhverfispunkta í sínum flokki. Sá sem kom næstur var 170 punktum neðar. „Movano hefur slegið í gegn fyrir afburða sveigjanleika, lipurð og hleðslugetu og í fyrra fengu allir atvinnubílarnir okkar sparneytnar og umhverfisvænar BiTurbo dísilvélar sem kemur þeim á þennan stall í umhverfislegu tilliti. Þar ætlum við að halda okkur í framtíðinni“ sagði Steffan Rasching frá Opel, sigri hrósandi, þegar hann veitti viðtöku verðlaunum fyrir umhverfisvænasta sendibílinn, við hátíðlega athöfn í Bonn á dögunum.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent