Árni og Elías á skotskónum | Rosenborg svo gott sem orðið meistari 18. október 2015 18:16 Árni skoraði sitt fyrsta mark í norsku deildinni í dag. mynd/facebook-síða lilleström
Árni Vilhjálmsson var á skotskónum þegar Lilleström vann 2-0 sigur á Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum komst Lilleström upp í 8. sæti deildarinnar. Árni var í byrjunarliði Lilleström og skoraði seinna mark liðsins á 19. mínútu. Þetta var fyrsta mark hans í norsku deildinni á tímabilinu. Finnur Orri Margeirsson kom inn á sem varamaður í liði Lilleström á 82. mínútu en Rúnar Kristinsson stýrir liðinu. Félagi Árna í U-21 árs landsliðinu, Elías Már Ómarsson, kom Vålerenga á bragðið í 3-1 sigri á Sarpsborg. Þetta var fjórða mark Elíasar á tímabilinu en Vålerenga er í 6. sæti deildarinnar. Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í miðri vörn Rosenborg sem gerði 1-1 jafntefli við Bodö/Glimt á heimavelli. Trond Olsen kom Bodö/Glimt yfir á 55. mínútu en Alexander Söderlund, fyrrverandi leikmaður FH, jafnaði metin fyrir Rosenborg 11 mínútum fyrir leikslok. Matthías Vilhjálmsson kom inn á sem varamaður í liði Rosenborg á 74. mínútu. Rosenborg er komið með níu fingur á titilinn og vantar aðeins eitt stig í síðustu þremur umferðunum til að tryggja sér hann. Hólmar, Matthías og félagar eru með 62 stig, níu stigum meira en Stabæk, sem er í 2. sæti, og miklu betri markatölu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira