Bæði spjallsími og snjallsími 29. október 2015 17:15 ,,Á skjánum eru færri öpp og minna kaos. Takkaborðið sjálft, þ.e. áþreifanlegu takkarnir, eru með hefðbundnu sniði að viðbættum fimm hnöppum sem eru skilgreindir fyrir ákveðnar aðgerðir,” segir Guðni Kristjánsson, eigandi og framkvæmdastjóri Actus ehf. MYND/VILHELM
KYNNING: Nú hefur LG dregið fram klassíska símaútlitið sem margir þekkja en sett þó í nútímalegan búning. LG Easy Smart er hybrid-samlokusími með „venjulegum“ tökkum, 3,2" snertiskjá og útgáfu 5.1 af Android-stýrikerfinu. Sem sagt, einfaldur en klassískur samloku-snjallsími. Eða snjall spjallsími. Guðni Kristjánsson, eigandi og framkvæmdastjóri Actus ehf., segir sumum símaeigendum þykja óneitanlega þægilegt að hafa áþreifanleikann með takkana að fingrum sér og hafa þannig tök á að framkvæma einföldustu aðgerðir. „En þó án þess að tapa þægindunum og aðgenginu sem Android býður upp á. Notkun á öppum, samfélagsmiðlar og önnur stafræn samskipti eru nú möguleg fyrir einstaklinga sem til þessa hafa ekki haft tök á að nýta sér snjallsímatæknina.“Klassíska símaútlitið sem margir þekkja en þó sett í nútímalegan búning. LG Easy Smart er hybrid-samlokusími með „venjulegum“ tökkum.Með einfaldri viðmótshönnun er aðgengi mun auðveldara en almennt á snjallsímum að sögn Guðna. „Á skjánum eru færri öpp og minna kaos. Takkaborðið sjálft, þ.e. áþreifanlegu takkarnir, eru með hefðbundnu sniði að viðbættum fimm hnöppum sem eru skilgreindir fyrir ákveðnar aðgerðir, t.d. fyrir myndavélina, símaskrána, tölvupóstinn o.fl. Auk þess er sérstakur hnappur fyrir neyðarskilaboð. Þegar ýtt er á hnappinn hringir hann í fyrirfram skilgreint númer ásamt því að senda skilaboð um staðsetningu.“ Helstu eiginleikar snjallsímans eru 3,2" skjástærð, Quad-core Snapdragon örgjörvi, 4G, WiFi, Bluetooth, 3MP myndavél, 1 GB í innra minni og 4 GB geymslupláss með möguleika á stækkun upp í 32GB. „Þetta er frábært tæki fyrir þá sem vilja upplifa gömlu þægindin og áþreifanleikann án þess að missa af snjallsímavæðingunni.“
Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira