Mikil frumsköpun í Frystiklefanum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 3. desember 2015 11:30 „Fróðá er áleitin og krefjandi sýning þar sem þessi magnaða saga er skoðuð út frá áður ókönnuðum vinkli og ætti ekki að láta neinn ósnortinn,“ segir Kári. Mynd/Úr einkasafni „
Sýningin er innblásin af draugasögu sem gerðist hér vestur á Snæfellsnesi fyrir þúsund árum, sögunni um Fróðárundrin. Við höfum fyllt í eyðurnar og búið til okkar eigin hrylling,“ segir Kári Viðarsson, leikhússtjóri Frystiklefans á Rifi, um Fróðá, verk sem frumsýnt verður þar á morgun. Hann er þar ábyrgur fyrir handriti, leikstjórn, sviðsmynd og framleiðslu og segir verkið spennandi enda efniviðinn frábæran. „En það er búið að vera mikið púsluspil að setja saman heila sýningu úr svona stuttri sögu, mikil frumsköpun í gangi til að allt rími saman þannig að úr verði upplifun,“ tekur hann fram.Fimm manna hópurinn sem stendur að sýningunni kemur úr ólíkum áttum eins og Kári lýsir. „Við erum með kvikmyndagerðarmanninn Rhys Votano frá Ástralíu sem er í raun eins og einn leikenda í sýningunni þó hann sé bak við tjöldin. Líka Allison Osberg, leikkonu frá Bandaríkjunum sem vinnur með brúður og grímur og sá sem semur tónlistina er Eirik Böen Gravdal frá Noregi. Auk þess eru íslenska leikkonan Aldís Davíðsdóttir og ég. Við höfum reynt að finna okkar eigið tungumál og Fróðá nær skemmtilega út fyrir boxið því í sýningunni mætast margir miðlar.“ Kári segir miðasöluna ganga vel. „Það lítur út fyrir að við verðum með sýningar nánast á hverjum degi á meðan við getum haldið listamönnunum á svæðinu,“ segir Kári en lokasýning verður 19. desember svo þetta verður sprengur í tvær vikur. Hann kveðst lukkulegur með að hafa fengið þátttakendurna til sín, jafnvel úr fjarlægum heimsálfum. „Ég er rosalega þakklátur fyrir að fólk skuli gefa sér tíma til vera á Rifi í tvo mánuði og taka þátt í því sem ég er að gera.“
Menning Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira