Þetta fannst mér um skaupið Atli Fannar Bjarkason skrifar 8. janúar 2015 07:00 Ég andaði léttar þegar það var samið við lækna enda vil ég að þeir séu með frábær laun og stórkostlega vinnuaðstöðu. Mér finnst hins vegar ósanngjarnt af þeim að bera kjör sín saman við kjör kollega sinna í nágrannaríkjunum. Við erum öll í sömu stöðu. Þess vegna vonaði ég að deila þeirra við stjórnvöld snerist minna um peninga og meira um aðstöðu, vinnutíma og framtíðarsýn. Mér finnst krafa Þjóðkirkjunnar um að fá 660 milljónir upp í niðurskurð síðustu ára fyrst og fremst taktlaus. Hún er líka ótrúleg, ósvífin og ógeðsleg. Kirkjan skar niður eftir hrun en það eru samt messur úti um allt á hverjum sunnudegi. Þjóðkirkjan getur skorið fjölda messa niður í eina, kallað hana fjarmessu og auglýst þægindin sem eru fólgin í að fara í messu heima hjá sér. Það er skemmtilegt fólk í Samfylkingunni en Árni Páll Árnason má ekki heyra Bjarna Benediktsson freta án þess að hann tjái sig í fjölmiðlum um lyktina. Ég er reyndar enn þá að bíða eftir að hann gagnrýni harðlega þessa afmælisköku sem Bjarni skreytti um daginn. Sjálfstæðisflokkurinn er vonlaust fyrirbæri með haug af töff meðlimum sem setja putta í eyrun þegar Ásmundur Friðriksson talar. Píratar eru hins vegar með Helga Hrafn Gunnarsson sem er uppáhaldsþingmaðurinn minn fyrir utan Óttarr Proppé. Ég tek því sem er að gerast á DV ekki persónulega og mér finnst Kók betra en Pepsi, Nike meira töff en Adidas, held með Liverpool í ensku og Tindastóli í körfunni. Ég skrifa þetta á Macbook en nota LG síma, mér finnst Twitter skemmtilegra en Facebook og hef aldrei prófað Tinder. Ég versla meira í Bónus en Krónunni en kaupi hamborgara í Víði þótt ég myndi reyndar borða pitsu í öll mál ef það væri samfélagslega samþykkt. En mér fannst hins vegar skaupið ekki nógu gott og það hefur ekkert að gera með ofangreindar skoðanir. Mér fannst það bara ekki nógu fyndið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun