Áhugaljósmyndarinn Binni frá Ólafsfirði Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 23. janúar 2015 16:00 Ljósmyndin af grindhvalavöðunni er ein sú fyrsta sem birtist eftir Binna þegar hann var átján ára gamall. Mynd/BrynjólfurSveinsson
Í dag verður opnuð sýning á ljósmyndum Brynjólfs Sveinssonar áhugaljósmyndara. Brynjólfur var fæddur 1914 en lést árið 1981 og var hann gjarnan kallaður Binni. Ljósmyndaáhuginn lét snemma á sér kræla og fór hann að taka myndir sextán ára gamall og talsvert af myndum birtust eftir hann í bókum, blöðum og tímaritum, fyrst árið 1933 þegar Binni var átján ára gamall. Fjölskylda Binna stóð í tilefni af hundrað ára fæðingarafmæli hans fyrir sýningu á ljósmyndum og kvikmyndum hans í Ólafsfirði. Var það í fyrsta skipti sem úrval mynda hans var sýnt opinberlega. Í dag verður opnuð sýning í Sjóminjasafninu með stórum hluta þeirra mynda sem sýndar voru á síðasta ári í Ólafsfirði. Á ljósmyndum Brynjólfs má sjá athafnalífið við höfnina, sjómenn, fiskverkafólk og myndir af Ólafsfirðingum við sín daglegu störf, en einnig á hátíðar- og sorgarstundum. Á sýningunni eru meðal annars myndir af skipsskaða á hvítasunnu árið 1935, vígslu sundlaugar Ólafsfjarðar árið 1945 og myndir sem hann tók í tengslum við flugslysið í Héðinsfirði árið 1947. Ljósmyndasafn Binna er varðveitt á Minjasafni Akureyrar en sýningin verður opnuð sem fyrr segir í dag klukkan fimm í Hornsílinu í Sjóminjasafninu í Reykjavík.
Menning Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira