Evrópusambandið sektar þrjá bílaíhlutaframleiðendur fyrir verðsamráð Finnur Thorlacius skrifar 27. janúar 2016 09:15 Mikil rassía er nú í gangi hjá yfirvöldum í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu gegn fyrirtækjum sem staðið gætu að verðsamráði.
Komist hefur upp um verðsamráð þriggja japanskra íhlutaframleiðenda í bíla, þ.e. Mitsubishi Electric Corp., Hitachi Ltd. og Denso. Mikil rassía er nú í gangi hjá yfirvöldum í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu gegn fyrirtækjum sem staðið gætu að verðsamráði og þetta mál er aðeins eitt af mörgum, að sagt er, sem ákært verður í á þessu ári. Margt virðist því í pípunum hvað verðsamráðsmál varðar á árinu. Þessi þrjú fyrirtæki hafa haldið uppi verði á íhlutum til bílaframleiðenda og þeirra sem selja varahluti í notaða bíla og vonandi kemur þessi sekt til með að lækka verð á bílum á næstu árum, sem og varahluti í þá. Evrópusambandið hefur heimildir til sektar allt að 10% veltu fyrirtækjanna, en ekki er víst að kröfur þess verði svo háar. Mitsubishi Electric Corp. og Hitachi Ltd., ásamt fleiri fyrirtækjum voru sektuð af bandarískum yfirvöldum árið 2013 og því kemur það ef til vill á óvart að þau hafi ekki lært af reynslunni og halda áfram iðju sinni. Evrópusambandi rannsakar nú samskonar verðsamráðsmál framleiðenda miðstöðva í bíla, ljósa, sætisbelta, stýrishjóla, pústkerfa og fleiri varahluta í bíla.
Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Björg býður ungliðum til fundar Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Innlent Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Innlent