Stjörnukonur missa fyrirliðann sinn til Kristianstad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2016 09:45 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir tekur við Íslandsbikarnum 2014. Vísir/Valli
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði bikarmeistara Stjörnunnar, mun spila með Kristianstad í sumar en þetta staðfesti Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska liðsins, i viðtali við fréttasíðuna Damfotboll.com. Ásgerður Stefanía spilaði með Kristianstad í byrjun tímabilsins í fyrra en skipti aftur yfir í Stjörnuna í maí og missti aðeins af einum leik Garðabæjarliðsins í Pepsi-deildinni. Elísabet staðfestir hinsvegar að Ásgerður Stefanía muni spila allt 2016-tímabilið með Kristianstad og þar með er ljóst að Stjörnukonur eru að missa leiðtoga sinn af miðjunni sem hefur verið ein að lykilleikmönnum í sigurgöngunni. Ásgerður Stefanía er 29 ára gömul og hefur unnið sex stóra titla með Stjörnunni á síðustu sex árum. Hún hefur spilað með Stjörnunni frá 2005 og er búinn að bera fyrirliðabandið frá árinu 2013. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir verður annar tveggja íslenskra leikmanna í liði Kristianstad en Sif Atladóttir er komin til baka eftir fæðingarorlof og Elísabet segir að hún sé komin í sitt gamla góða form. Elísabet horfði aftur á móti á eftir Eyjasystrunum Margéti Láru og Elísu Viðarsdætrum sem sömdu báðar við Val og spila því í Pepsi-deildinni í sumar. Margrét Lára var fyrirliði liðsins með Susanne Moberg og sú hefur einnig yfirgefið Kristianstad sem missir því báða leiðtoga sína á einu bretti. Sif var hinsvegar fyrirliði liðsins áður en hún fór í barnsburðarleyfi og tekur væntanlega aftur við fyrirliðabandinu nú. Kristianstad hefur verið í miklum fjárhagsvandræðum og Elísabet segir að félagið hafi ekki efni á því að bjóða stóra samninga. Hún segir því að félagið þurfi að búa til sína leikmenn. Elísabet er samt vongóð um að reksturinn gangi betur í ár en í fyrra.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Sjá meira