Porsche bílar Seinfeld seldust á 2,8 milljarða Finnur Thorlacius skrifar 14. mars 2016 10:54 Seinfeld seldi þennan Porsche 550 Spyder af árgerð 1955 á 5,3 milljónir dollara.
Grínistinn Jerry Seinfeld seldi 15 Porsche bíla sína á Amelia Island uppboðinu í Flórída á föstudaginn, auk tveggja Volkswagen bíla. Fyrir þá fengust 22 milljónir dollara, eða um 2,8 milljarðar króna. Stjarna dagsins var 1955 árgerðin af Porsche 550 Spyder og seldist hann á 5,3 milljónir Bandaríkjadala. Einnig seldist 1959 árgerðin af Porsche 718 RSK á 2,9 milljónir dala og Porsche 911 Carrera 3,0 frá árinu 1974 á 2,3 milljónir dala. Það var Jerry Seinfeld sjálfur sem kynnti bílana á uppboðinu og var rafmagnað andrúmsloft á uppboðinu og hart barist um bílana. Aðeins einn bíll af safni Seinfeld seldist ekki, eða 2000 árgerðin af Porsche Carrera GT Prototype þar sem ekki var boðið lágmarksverð í bílinn, eða 1,5 milljónir dala. Þó svo Seinfeld hafi boðið til sölu marga af bílum sínum var þarna aðeins um að ræða 10% af Porsche bílasafni hans og því á hann nóg eftir. Seinfeld segir að hann hafi aldrei keypt Porsche bíl sem fjárfestingu, aðeins sér til ánægju og lét þau orð falla að hann einfaldlega elskaði bíla, ekki síst af gerðinni Porsche. Á Amelia Island uppboðinu seldust þessu sinni bílar af andvirði 60 milljóna dollara, eða fyrir 7,6 milljarða króna. Sá sem fór á hæsta verðinu var 1961 árgerðin af Ferrar 250 GT California SWB Spider og var hann seldur á 17,2 milljónir dollara, eða 2,2 milljarða króna.
Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Neita að afhenda dóma lögreglumanna Innlent Stúlkan er fundin Innlent Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent