Kominn til Rosenborg til að vinna titla Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. mars 2016 10:05 Vísir
Guðmundur Þórarinsson er genginn til liðs við norska liðið Rosenborg en hann hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Fyrir hjá félaginu eru þeir Matthías Vilhjálmsson og Hólmar Örn Eyjólfsson. “Tilfinningin er mjög góð. Rosenborg er félag sem hefur allt til að bera og ég hlakka til að fara af stað,” sagði Guðmundur í viðtali á heimasíðu félagsins en hann kemur frá danska liðinu Nordsjælland. Guðmundur hefur verið fastamaður í liði Nordsjælland á núverandi leiktíð en hann spilaði síðast með liðinu í 3-1 sigri á OB fyrr í þessum mánuði. Alls á hann að baki 36 leiki fyrir Nordsjælland og skoraði hann í þeim eitt mark. Guðmundur þekkir vel til norska boltans en hann var á mála hjá Sarpsborg 08 í tvö tímabil, 2013 og 2014. Þar skoraði hann tíu mörk og lagði upp fjórtán til viðbótar í 68 leikjum. “Ég spilaði á báðum köntum hjá Sarpsborg en ég lít frekar á mig sem miðjumann,” sagði Guðmundur sem segir markmiðin skýr hjá félaginu. “Ég er hingað kominn til að vinna. Vinna leiki og vinna titla." Aðeins markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er eftir af Íslendingunum sem voru á mála hjá Nordsjælland. Guðjón Baldvinsson fór í Stjörnuna, Adam Örn Arnarson í Álasund, Guðmundur í Rosenborg auk þess sem að Ólafur Kristjánsson er hættur sem þjálfari liðsins.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira