Ford “Allroad”-væðir 5 bílgerðir Finnur Thorlacius skrifar 5. apríl 2016 14:15 Ford Focus X-Road var smíðaður í 300 eintökum en síðan ekki söguna meir.
Hjá Ford eru uppi áform að bjóða nokkra af fólksbílum sínum í grófari og torfærufærari útgáfum líkt og Audi gerir með A6 Allroad bílinn. Hann er í grunninn hefðbundinn A6 bíll. Þessi aðferð er aldeilis ekki ókunn meðal bílaframleiðenda og nærtækast er að nefna ýmsa fleiri bíla innan Volkswagen bílafjölskyldunnar. Það eru bílar eins og Skoda Octavia Scout, Volkswagen Passat Alltrack og Seat Leon Xperience. Þessir bílar eru allir hefbundnir fólksbílar sem hækkaðir hafa verið upp, bætt á þá áberandi brettaköntum, stórum stuðurum með hlífðarplötum og toppgrind og fjöðrun flestra þeirra hefur verið breytt. Sparar þróunarkostnaðÞetta ætlar Ford einmitt að gera með einar 5 bílgerðir sínar, en hefur ekki látið upp hvaða gerðir það eru. Þetta telur Ford vænlegra en að smíða nýja jepplinga og er helsta ástæðan þess líklega sú að það sparar mikið í þróunarkostnaði. Aðeins þarf með þessu að útfæra fyrri bíla fyrirtæksins á örlítið annan og grófari hátt og koma þeim fyrir vikið mun fyrr á markað. Líklegt má telja að Ford Mondeo og Focus muni fá svona meðferð og ef til vill Fiesta. Þó það hafi ekki farið hátt þá gerði Ford verksmiðja í Hollandi einmitt svona breytingu á 300 bílum af langbaksgerð Ford Focus árið 2009 og kallaði hann “X Road”. Ekkert framhald varð þó af þessari gerð Focus.
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent