Chris Evans grætir starfsfólk í Top Gear Finnur Thorlacius skrifar 27. apríl 2016 09:28 Chris Evans að stjórna Top Gear þætti, líklega dauðþreyttur og pirraður.
Jeremy Clarkson var rekinn fyrir ruddaskap við það starfsfólk sem vann með honum við gerð Top Gear þáttanna, en nýr aðalstjórnandi þeirra nú, Chris Evans, er sagður haga sér sýnu verr en Clarkson og græta starfsfólk með ruddaskap sínum. Það var nú ekki það sem BBC vonaðist eftir við umskiptin. Það er vafalaust erfitt að sinna tveimur störfum eins og Chris Evans, að vera stjórnandi stærsta morgunþáttar í bresku útvarpi og vera aðalstjórnandi vinsælasta sjónvarpsþáttar þjóðarinnar einnig, en það virðist Chris Evans tæplega höndla um þessar mundir og það virðist hann ekki ráða við. Reyndar herma fréttir að Chris Evans vilji ekki vinna nema fjögurra stunda vinnudag, svo ekki virðist hann ráða vel við álag. Hann þarf reyndar að vakna ansi snemma til að stjórna útvarpsþætti sínum sem er í loftinu milli 6:30 og 9:30 og þá þarf hann að mæta til hinnar vinnunnar, við að stjórna nýjum Top Gear þáttum. Þangað virðist hann mæta dauðþreyttur og pirraður. Það að vera aðalstjórnandi Top Gear er alveg örugglega fullt starf og því virðist sem Chris Evans hafi tekið sér of mikið fyrir hendur og ráði ekki við álagið. Hann tekur líka sín köst við útvarpsþáttagerðina og öskrar þar líka á starfsfólk sitt. Heimildarmaður innan BBC hefur látið eftir sér hafa að Chris sé algerlega hömlulaus og úttaugaður og hagi sér mun verr en Jeremy Clarkson nokkurntíma gerði.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Innlent