Gerrard myndi láta Rooney byrja á miðjunni gegn Rússum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júní 2016 14:30 Gerrard og Rooney spiluðu ófáa landsleikina saman. víisr/getty
Steven Gerrard, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins, myndi láta Wayne Rooney byrja á miðjunni þegar England mætir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM 2016 á morgun. Gerrard, sem leikur með Los Angeles Galaxy í bandarísku MLS-deildinni, skrifar reglulega pistla fyrir the Telegraph og í tilefni af fyrsta leik Englands á EM var þessi mikla Liverpool-goðsögn fengin til að velja það lið sem hann myndi láta byrja gegn Rússum. Gerrard stillir upp í leikkerfið 4-3-3 með þá Rooney og Dele Alli fyrir framan Eric Dier á miðjunni. Mikið hefur verið rætt og ritað um stöðu Rooney í enska liðinu; hvar Roy Hodgson muni stilla honum upp og hvort hann muni yfirhöfuð byrja í Frakklandi.Sjá einnig: Rooney er ekki sami leikmaður og hann yar Gerrard segir ennfremur að ef Jack Wilshere væri í topp leikformi myndi hann byrja með Arsenal-manninn aftastan á miðjunni í stað Diers. Gerrard setur fyrrverandi samherja sína hjá Liverpool, Adam Lallana og Raheem Sterling, á sitt hvorn kantinn og fremstur er svo Harry Kane, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Gerrard spilaði með enska landsliðinu á sex stórmótum en hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir HM 2014 í Brasilíu þar sem England vann ekki leik.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Sjá meira