Hamilton: Það er aldrei lognmolla í keppninni hér Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 10. júlí 2016 20:15 Þeir sem tóku á móti verðlaunum í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann sína fjórðu keppni á Silverstone í dag og sína þriðju í röð. Hver sagði hvað eftir keppnina? „Ég er ánægður að góða veðrið sem England hefur uppá að bjóða kom. Það er aldrei lognmolla í keppninni hér þetta var gaman og aðdáendur hér gera þetta að bestu keppninni á tímabilinu,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum. „Ég verð að sætta mig við annað sætið í dag. Ég átti spennandi baráttu við Max [Verstappen] eftir að hann komst fram úr mér,“ sagði Nico Rosberg á verðlaunapallinum. „Þetta var gaman, keppnin var afar skemmtileg. Ég verð að viðurkenna að ég tók ekki þjónustuhlé á réttum tíma, var aðeins of seinn og það kostaði mig hugsanlega sæti en ég naut þess að keyra í dag,“ sagði Max Verstappen á verðlaunapallinum. „Ég held að leiðbeiningarnar til Nico hafi verið inna reglnanna,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins. „Dómararnir verða að ákveða þetta. Við vildum ekki missa af mögulegu tækifæri til að græða á refsingu sem Rosberg gæti fengið. Við vildum þess vegna halda Max úti. Seinni helmingur tímabilsins ætti að henta okkur betur,“ sagði Christian Horner liðsstjóri Red Bull. „Keppnin var frábær eftir að öryggisbíllinn kom inn. Lewis ók frábærlega, hann stjórnaði bílnum vel í erfiðum aðstæðum og stjórnaði keppninni þar eftir. Red Bull er okkar helsti keppinautur eins og er,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes. „Þetta var leiðinlegt. Ég get ekki sagt að keppnin hafi verið skemmtileg. Ég var einn á ferli ansi lengi og ég var óheppinn stafræna öryggisbílinn. Mér dauðleiddist í keppninni,“ sagði Daniel Ricciardo á Red Bull sem varð fjórði. „Ég held að ég hafi tapað öllu sem ég græddi á að koma inn þegar ég snérist. Ég tel að refsingin fyrir að loka á Felipe [Massa] hafi verið harkalegt. Ég var bara griplaus. Við vorum einfaldlega ekki nógu fljótir í dag,“ sagði Sebastian Vettel sem varð níundi á Ferrari bílnum í dag.
Formúla Tengdar fréttir Lewis Hamilton á ráspól á heimavelli Lewis Hamilton verður á ráspól á Silverstone brautinni á morgun á Mercedes bílnum. Nico Rosberg verður annar og Max Verstappen þriðji á Red Bull. 9. júlí 2016 13:04 Lewis Hamilton vann á heimavelli Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark á Silerstone brautinni í dag. Nico Rosberg varð annar á Mercedes og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji. Rosberg tapaði öðru sætinu til Verstappen. Hann fékk of ítarlegar upplýsingar í talstöðinni. 10. júlí 2016 13:30 Hamilton fljótastur á heimavelli og Raikkonen áfram hjá Ferrari Heimsmeistarinn Lewis Hamilton, ökumaður Mercedes liðsins var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Breski kappaksturinn fer fram á Silverstone brautinni um helgina, heimavelli Hamilton. 8. júlí 2016 22:30 Hamilton: Það er allt á hreinu okkar á milli Rosberg Lewis Hamilton náði sínum fjórða ráspól á Silverstone í dag og sínum 55. á ferlinum. Eftir að tíma hans hafði verið eytt tókst honum að setja hraðasta tímann. 9. júlí 2016 17:15 Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira
Lewis Hamilton á ráspól á heimavelli Lewis Hamilton verður á ráspól á Silverstone brautinni á morgun á Mercedes bílnum. Nico Rosberg verður annar og Max Verstappen þriðji á Red Bull. 9. júlí 2016 13:04
Lewis Hamilton vann á heimavelli Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark á Silerstone brautinni í dag. Nico Rosberg varð annar á Mercedes og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji. Rosberg tapaði öðru sætinu til Verstappen. Hann fékk of ítarlegar upplýsingar í talstöðinni. 10. júlí 2016 13:30
Hamilton fljótastur á heimavelli og Raikkonen áfram hjá Ferrari Heimsmeistarinn Lewis Hamilton, ökumaður Mercedes liðsins var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Breski kappaksturinn fer fram á Silverstone brautinni um helgina, heimavelli Hamilton. 8. júlí 2016 22:30
Hamilton: Það er allt á hreinu okkar á milli Rosberg Lewis Hamilton náði sínum fjórða ráspól á Silverstone í dag og sínum 55. á ferlinum. Eftir að tíma hans hafði verið eytt tókst honum að setja hraðasta tímann. 9. júlí 2016 17:15