Aubameyang: Ef ég fer frá Dortmund verður það bara til Real Madrid Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. júlí 2016 16:45 Gabonski framherjinn raðaði inn fyrir Dortmund í fyrra. vísir/getty
Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Dortmund, segir það, að spila fyrir Real Madrid sé hans helsta markmið á ferlinum og að spænski risinn er eina félagið sem fengi hann til að yfirgefa Dortmund. Aubameyang hefur verið orðaður við enska liðið Manchester City að undanförnu en það er sagt vera búið að gera Dortmund risatilboð í framherjann sem skoraði 39 mörk í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Aðspurður í viðtali við ZDF hvort hann væri á leið frá Dortmund svaraði Gabonmaðurinn einfaldlega: „Nei, ekki á þessu ári. En eina félagið sem gæti fengi mig til að yfirgefa Dortmund er Real Madrid. Ef það hringir ekki þá fer ég ekki.“ Aubameyang lofaði afa sínum að spila fyrir Real Madrid þegar sá gamli var við það að kveðja þennan heim. Hann vonast til að geta staðið við loforðið. „Pabbi mömmu vildi alltaf að ég myndi spila á Spáni. Fyrir tveimur árum þegar hann lést lofaði ég honum að einn daginn myndi ég spila fyrir Real Madrid. Ég mun leggja mikið á mig til að ná því markmiði,“ segir Aubameyang. „Real Madrid er stóra markmiðið mitt en þessa stundina er ég ánægður hjá Dortmund. Ef það er tækifæri til að fara til Madrid mun ég segja já samstundis,“ segir Pierre-Emerick Aubameyang.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Leggja ríginn til hliðar í tvo klukkutíma Sport Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Enski boltinn „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Fleiri fréttir Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Sex handtökur í mótmælum fyrir leik í Evrópudeildinni Emilía skoraði annan leikinn í röð Logi á toppnum en Hákon á bekknum Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Ronaldo og félagar spila landsleik í sérstökum Eusébio-búningi Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Suárez dæmdur í bann fyrir hælspark í mótherja og missir af risaleik Pálmi í ótímabundið leyfi Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst „Ég og Nik erum ágætis vinir“ „Vel gert að geta haldið áfram í svona ástandi“ Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Sjá meira