Heimir: Við þurfum að sækja þennan titil Smári Jökull Jónsson skrifar 11. september 2016 19:15 Heimir og félagar eru í afar góðri stöðu á toppi Pepsi-deildarinnar. vísir/ernir
Heimir Guðjónsson þjálfari FH sagði að jafntefli hefðu verið nokkuð sanngjörn úrslit í leik FH-inga og Breiðabliks í Kaplakrika í kvöld. Eftir leikinn eru Hafnfirðingar með 7 stiga forystu á toppi Pepsi-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. „Miðað við hvernig leikurinn þróaðist þá held ég að við getum verið sáttir. Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik og þeir settu á okkur pressu. Við vorum búnir að æfa hana vel í vikunni en við vorum alltof staðir og ekki að finna þær lausnir sem við vorum búnir að leggja upp með fyrir leikinn,“ sagði Heimir í samtali við Vísi að leik loknum. „Í seinni hálfleik þá fannst mér við vera sterkari, sérstaklega þegar leið á hálfleikinn. Við fengum ágætis möguleika til að setja þetta annað mark. En jafntefli eru líklega sanngjörn úrslit.“ Jafntefli eru ágæt úrslit fyrir FH sem komu þar með í veg fyrir að Breiðablik næði að minnka forystu liðsins á toppnum. Í fyrri hálfleik leit út fyrir að heimamenn leggðu fyrst og fremst áherslu á að verja stigið. „Nei, það var ekki planið. Við vitum það að við þurfum að sækja þennan titil, hann er ekki að fara að detta í hendurnar á okkur. Það er alltaf þannig að þegar þú ert að sækja titla þá viltu vinna leiki. Við lögðum upp með það í dag að vinna þennan leik,“ sagði Heimir að lokum.
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Sjá meira