Gunnhildur hélt titildraumum Hólmfríðar og Þórunnar á lífi Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. október 2016 14:54 Hólmfríður Magnúsdóttir getur enn orðið meistari í Noregi. vísir/vilhelm
Hólmfríður Magnúsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir og stöllur þeirra í norska úrvalsdeildarliðinu Avaldsles eiga enn möguleika á norska meistaratitlinum eftir úrslitin í næst síðustu umferðinni sem var spiluð í heild sinni í dag. Avaldsnes var fjórum stigum á eftir meisturum Lilleström fyrir daginn en vann 1-0 sigur á Sandviken á útivelli á meðan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og stöllur hennar í Stabæk gerðu 2-2 jafntefli við Lilleström á heimavelli sínum. Gunnhildur, Hólmfríður og Þórunn Helga voru allar í byrjunarliðinu hjá sínum liðum eins og vanalega en þetta jafntefli Lilleström heldur titildraumum Avaldsnes á lífi fram í lokaumferðina. Lilleström er á toppnum með 57 stig en Avaldsnes með 55 stig. Meistararnir mæta Sandviken í lokaumferðinni en Avaldsnes á leik gegn Gunnhildi og Stabæk-liðinu. Fyrir jafnteflið í dag var Lilleström búið að vinna tólf leiki í röð en þetta er aðeins þriðji leikurinn af 21 sem liðið vinnur ekki. Það er með 18 sigra og þrjú jafntefli en ekkert tap á toppnum en gæti samt misst af titlinum í lokaumferðinni til Avaldsnes. Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyrir Wolfsburg sem gerði markalaust jafntefli við Frankfurt á heimavelli sínum, AOK Stadion, í þýsku úrvalsdeildinni. Wolfsburg er í 3. sæti deildarinnar með 14 stig eftir sex umferðir. Freiburg er með jafn mörg stig en betri markatölu í 2. sæti og á toppnum situr Potsdam með 15 stig. Sara hefur leikið alla leiki Wolfsburg það sem af er tímabili.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Handbolti Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Fleiri fréttir „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Sjá meira