Nissan Navara björgunarbíll Finnur Thorlacius skrifar 1. nóvember 2016 14:51
Þennan sérútbúna Nissan Navara björgunarbíl kynnti Nissan á bílasýningunni í Hannover nýlega og virðist hér um afar hæfan bíl að ræða til björgunarstarfa. Hann hefur verið hækkaður um 5 cm frá grunngerð bílsins og er á breiðum og stórum dekkjum til að tryggja það að hann komist um talsverðar ófærur. Auk þess er hann með loftinntak við þak bílsins og er því með mikla vaðdýpt. Í bílnum er gríðarlega mikill búnaður sem gagnast til björgunarstarfa og hluta hans má draga fram á skúffum úr koltrefjum sem renna á brautum á palli bílsins. Þar má meðal annars finna súrefniskúta, björgunarvesti, endurlífgunarbúnað og exi. Bílnum fylgir DJI Phantom dróni af vönduðustu gerð og er honum ætlað að sjá yfir björgunarsvæði og auðvelda að finna fólk og bjarga því. Tvær mjög stórar rafhlöður eru á palli bílsins og eiga þær að sjá ýmsum rafdrifnum björgunarbúnaði fyrir orku, meðal annars klippitöngum, tjökkum, ljósum og hitablásurum. Þak björgunarbílsins er 13,6 cm hærra en í hefðbundnum Navarra. Bíllinn er búinn gríðarsterkum kösturum sem lýsa má allan hringinn kringum bílinn. Mjög vigalegur í þessum búningi.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Innlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent