Langþráður sigur hjá Haukum | Jafnt hjá Fylki og Gróttu 28. janúar 2017 18:00 Ramune Pekarskyte og félagar fá verðugt verkefni í sextán liða úrslitunum. Vísir/Stefán
Haukakonur unnu nauman sigur á ÍBV á heimavelli í Olís-deild kvenna í dag 28-25 en þetta var fyrsti sigur Hauka í síðustu fimm leikjum og komust þær upp að hlið Vals í 3. sætið með sigrinum. Haukakonur höfðu misst flugið í undanförnum leikjum og misst af toppliðunum en tap í dag hefði þýtt að liðið væri komið í neðri hluta deildarinnar. Haukar leiddu 12-10 í hálfleik og unnu að lokum þriggja marka sigur þrátt fyrir að hafa verið þrjár brottvísanir á síðustu tíu mínútum leiksins. Ramune Petraskyte var markahæst í liði Hauka með 9 mörk en Sigrún Jóhannsdóttir bætti við fimm mörkum. Í liði Eyjakvenna var Greta Kavaliauskatté atkvæðamest með átta mörk en hornamaðurinn Karólína Bæhrenz Lárudóttir kom næst með sjö mörk. Í seinni leik dagsins mættust neðstu liðin tvö, Fylkir og Grótta í Fylkishöllinni og náðu Seltirningar að taka stig eftir að hafa lent þremur mörkum undir í fyrri hálfleik. Fylkiskonur gátu með sigri í dag saxað aðeins á næstu lið og leiddu Árbæingar 13-10 í hálfleik en stórleikur Lovísu Thompson hélt Gróttu inn í leiknum. Tókst Seltirningum að landa stigi en með því fara Gróttukonur upp í 6. sæti, upp fyrir Selfoss. Lovísa bar sóknarleik Gróttu lengi á herðum sér með ellefu mörk en Þórey Anna Ásgeirsdóttir var með sjö mörk. Voru þær því með 18/24 marka liðsins(66,6%). Í liði Fylkis var Thea Imani Sturludóttir markahæst með átta mörk en Christine Rishaug bætti við sex mörkum.
Olís-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Sjá meira