Guðmundur Þórarinsson til IFK Norrköping Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2017 11:30 Guðmundur Þórarinsson. Vísir/Getty
Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson verður kynntur í dag sem nýr leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins IFK Norrköping. Þetta kemur fram í frétt á Norrköpings Tidningar. IFK Norrköping hefur boðað til blaðamannafundar eftir hádegið þar sem Guðmundur verður staðfestur sem nýr leikmaður liðsins. Liðið kaupir hann frá norsku meisturunum í Rosenborg. Guðmundur er 24 ára gamall sem spilar vanalega inn á miðri miðjunni. Hann kemur frá Selfoss þar sem hann hóf ferilinn sinn en lék með ÍBV í Pepsi-deildinni áður en hann fór út í atvinnumennsku. IFK Norrköping verður fjórða félag Guðmundar í atvinnumennsku en hann hefur áður spilað með norska félaginu Sarpsborg 08, danska félaginu Nordsjaelland og nú síðast með Rosenborg BK í eitt ár. Guðmundur Þórarinsson spilaði 24 leiki með Rosenborg á síðustu leiktíð og hjálpaði liðnu að vinna tvöfalt. Guðmundur hefur verið að glíma við hnémeiðsli í vetur og hefur því ekki náð að æfa að fullu. Guðmundur verður ekki fyrsti Íslendingurinn til að spila með IFK Norrköping en nú síðast léku með liðinu Arnór Ingvi Traustason, Jón Guðni Fjóluson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Garðar Gunnlaugsson. Arnór Ingvi var seldur til Austurríkis síðasta sumar eftir að hafa hjálpað liðinu að vinna sænska meistaratitilinn 2015 en Jón Guðni er enn hjá félaginu eftir að hafa komið til liðsins í fyrra.
Fótbolti Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Bein útsending: Arnar kynnir hópinn fyrir örlagastund Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag Fótbolti Fleiri fréttir Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Bein útsending: Arnar kynnir hópinn fyrir örlagastund Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Sjá meira