Finni útnefndur heiðursstjórnandi hjá Sinfóníuhljómsveitinni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. mars 2017 13:12 Osmo Vänskä
Finnski hljómsveitarstjórnandinn Osmo Vänskä var útnefndur heiðursstjórnandi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands í dag en hann hefur gegnt stöðu aðalgestastjórnanda frá árinu 2014. Þá var hann einnig aðalstjórnandi hljómsveitarinnar á árunum 1993 til 1996 og stjórnaði sveitinni meðal annars á tónleikum á Carnegie Hall í New York árið ´96. Þá flutti Sinfóníuhljómsveitin sinfóníu nr. 2 eftir Sibelius en í kvöld mun Vänskä stýra sveitinni á ný í sömu sinfóníu á tónleikum í Hörpu í kvöld. Í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveitinni kemur fram að Vänskä hafi „stjórnað öllum helstu hljómsveitum heims og hefur verið aðalstjórnandi Minnesota-hljómsveitarinnar frá árinu 2003. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir starf sitt með þeirri sveit, hefur m.a. hljóðritað allar sinfóníur Beethovens og um þann flutning sagði gagnrýnandi New York Times að þar væri komin „hin fullkomna Beethoven-túlkun okkar tíma.“ Vänskä hefur hljóðritað fyrir sænska forlagið BIS um áratugaskeið, meðal annars tvo hljómdiska með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hafa hlotið afbragðs dóma á heimsvísu.“
Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira