Þrenna hjá Paulinho er Brassar rúlluðu yfir Úrúgvæ í toppslagnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. mars 2017 08:00 Paulinho fagnar. vísir/getty
Brasilíska landsliðið í fótbolta er svo gott sem komið á HM 2018 í Rússlandi eftir afar glæsilegan og sannfærandi sigur á Úrúgvæ, 4-1, í toppslag undankeppninnar í Suður-Ameríku. Miðjumaðurinn Paulinho, sem stuðningsmenn Tottenham muna eftir, eða vilja kannski gleyma sem fyrst, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Brassa sem lentu undir strax á 8. mínútu þegar Edinson Cavani kom heimamönnum yfir úr vítaspyrnu. Paulinho, sem hefur spilað undanfarin tvö ár með Guangzhou Evergrande í Kína, jafnaði metin á 18. mínútu og kom Brössum yfir, 2-1, á 51. mínútu. Neymar jók forskotið í 3-1 á 74. mínútu og Paulinho innsiglaði sjaldséða þrennu í uppbótartíma og frábær sigur Brasilíumanna staðreynd, 4-1. Brassar eru með 30 stig eftir þrettán umferðir af 18 og eru á toppi riðilsins. Úrúgvæ er í öðru sæti með 23 stig. Argentína komst upp í þriðja sætið með lífsnauðsynlegum sigri á Síle, 1-0, og Kólumbía er í fjórða sætinu með 21 stig. Fjögur efstu liðin fara beint á HM 2018 í Rússlandi en liðið sem hafnar í fimmta sæti fer í umspil um sæti á HM. Lionel Messi var hetja Argentínumanna á móti Síle en hann skoraði eina markið úr vítaspyrnu á 16. mínútu.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira