Nýr Volvo XC60 farinn að renna af færiböndunum í Svíþjóð Finnur Thorlacius skrifar 27. apríl 2017 10:45 Volvo XC60 á bílasýningunni í New York.
Framleiðsla á nýrri kynslóð af Volvo XC60 jepplingnum er nú hafin í verksmiðju Volvo í Torslanda verksmiðjunni í Svíþjóð. Bíllinn er af 2018 árgerð en hann var bæði sýndur á bílasýningunni í Genf í mars og á bílasýningunni í New York skömmu síðar og líkaði vel. Sala Volvo XC60 nemur 30% af heildarsölu Volvo og þar fer best seldi bíll Volvo.Það er því eins gott að vel hafi lukkast við þróun þessarar nýju kynslóðar bílsins. Fyrsti bíllinn sem rúllaði af færiböndunum í Torslanda var Crystal-hvítur og í T5 útgáfu og fjórhjóladrifinn. Það þýðir að hann er með 250 hestafla 2,0 lítra bensínsvél sem togar 350 Nm og er tengd við 8 gíra sjálfskiptingu. Sá bíll er 6,8 sekúndur í hundraðið og með hámarkshraðann 220 km/klst. Fyrir enn kröfuharðari kaupendur á Volvo XC60 býðst 407 hestafla T8 útgáfa bílsins með bæði brunavél og rafmótora og sá bíll er aðeins 5,3 sekúndur í hundraðið og með 230 km hámarkshraða. Eins og við er að búast er nýr XC60 með öruggari bílum og hlaðinn öryggiskerfum og sagður með allra öruggustu bílum heims. Nýr Volvo XC60 kemur með sjálfkeyrandi búnaði sem nota má uppað 130 km hraða og þá sér bíllinn alfarið um stýringu, hröðun, bremsun og heldur tilhlýðilegri fjarlægð frá öðrum bílum. Innan fárra mánaða mun Volvo svo kynna nýjan XC40 jeppling og sagt er að Volvo vinni nú að þróun enn minni jepplings/fólksbíls sem fær stafina XC20/S20.
Mest lesið „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira