Ágúst snýr aftur sem þjálfari kvennaliðs Vals Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2017 15:38 Ágúst Jóhannsson. Vísir/Pjetur
Ágúst Jóhannsson er tekinn við kvennaliði Vals og mun stýra liðinu í Olís-deild kvenna á komandi tímabili. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Valsmanna. Ágúst tekur við starfi Alfreðs Finnssonar sem var látinn fara rétt fyrir lok tímabilsins en þær Sigurlaug Rúnarsdóttir og Berglind Íris Hansdóttir stýrði Valsliðinu í síðustu leikjunum. Ágúst missti sjálfur starfið sitt á dögunum þegar meistaraflokkur karla hjá KR var lagður niður en hann hafði komið KR-liðinu upp í Olís-deildina í vetur. Það varð síðan ekkert að því að KR-liðið spilaði í deildinni vegna aðstöðuleysis í KR-húsinu en eftir viðræður við stjórn félagsins var meistaraflokkurinn lagur niður. Ágúst hefur tæplega tuttugu ára þjálfarareynslu í meistaraflokkum beggja kynja, bæði hér á landi sem og erlendis. Ágúst var einnig landsliðsþjálfari kvenna til margra ára og stýrði liðinu meðal annars á HM í Brasilíu árið 2011 og EM í Serbíu árið 2012. „Auk þess að þjálfa meistaraflokkinn mun Ágúst styðja við ungmennalið félagsins sem stefnt er að því að senda til keppni annað árið í röð. Jafnframt mun Ágúst styðja við metnaðarfullt starf handknattleiksdeildar í kvennaflokkum félagsins,“ segir í frétt um Ágúst á fésbókarsíðu handboltans í Vals. Þetta er eins og áður sagði ekki í fyrsta sinn sem Ágúst þjálfar kvennalið Vals í handbolta því hann þjálfaði liðið einnig á árunum 1999 til 2002 og gerði liðið meðal annars að bikarmeisturum árið 2000.
Olís-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira