Ísland fyrirferðarmikið í auglýsingum fyrir nýjan síma frá skapara Android Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. maí 2017 12:58 Ísland er í aðalhlutverki Mynd/Essential
Ísland er í aðalhlutverki í kynningarefni fyrir glænýjan síma sem Andy Rubin, maðurinn sem skapaði Android-stýrikerfið, hefur gefið út. Síminn er settur til höfuðs símum frá Apple og Samsung, sem og öðrum símum.Síminn var kynntur á dögunum og nefnist hann Essential. Hann er glæsilegur á að líta og nær skjárinn yfir alla framhlið símans, að undanskildum smá hluta efst þar sem skilið er eftir pláss fyrir myndavél. Rubin, sem starfaði fyrir Google, yfirgaf fyrirtækið árið 2014 til þess að stofna Playground, fyrirtæki sem fjárfestir í tæknifyrirtækjum. Essential er eitt af þeim fyrirtækjum sem Playground fjármagnar. Síminn er gerður úr títaníum og er því haldið fram að þar af leiðandi sé hann harðgerðari en aðrir símar og þoli betur högg og aðrar skrámur. Síminn er aðeins fáanlegur í Bandaríkjunum, enn sem komið er og mun kosta 699 dollara, um 70 þúsund krónur. Notast hann við Android-stýrikerfið. Íslenskt landslag er afar fyrirferðarmikið í öllu kynningarefni símans og má þar meðal annars sjá myndir teknar á Stokknesi, við Grjótahjá í Mývatnssveit sem og við Hnausapoll sem er gígvatn í friðlandinu að Fjallabaki.Vestrahorn.Mynd/EssentialVestrahorn að vetri til.Mynd/EssentialGrjótagjáMynd/EssentialMynd/Essential
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira