28 ára Audi Quattro seldist á 10,5 milljónir Finnur Thorlacius skrifar 3. október 2017 09:00 Audi Quattro.
Það eru yfirleitt gamlir Ferrari bílar sem seljast á himinháar upphæðir á uppboðshúsum heimsins, en minna um það að gamlir Audi bílar seljist fyrir mikið fé. Þessi Audi Quattro bíll, sem aðeins hefur verið ekið 51.857 kílómetra og er í frábæru ástandi, seldist þó á 72.050 pund á Classic Car Auctions uppboðinu í Bretlandi fyrir skömmu. Það samsvarar um 10,5 milljónum króna. Það var helmingi hærra verð en búist hafði verið við að greitt yrði fyrir bílinn. Audi Quattro bílar voru framleiddir í um 11.000 eintökum á árunum 1980 til 1991, en þessi tiltekni bíll er af árgerð 1989. Hann er með 2,2 lítra og fimm strokka vél sem skilar 217 hestöflum til allra hjólanna. Hámarkshraði hans er 230 km/klst sem þótti gott á þeim tíma. Bæði ytra og innra byrði bílsins er í svo til óaðfinnanlegu ástandi og skýrir það að hæuta til hátt verðið sem boðið var í hann. Þar sem ekki voru framleiddir svo margir Audi Quattro bílar og fáir þeirra í svona góðu ástandi má bara búast við hækkandi verði svona bíla í slíku standi. Audi Quattro á glæsta sögu í rallakstri og var nánast ósigrandi bíll í mörg ár eftir að hann kom til sögunnar.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent