Audi heldur tryggð við dísilvélar Finnur Thorlacius skrifar 3. október 2017 18:26 Ný kynslóð Audi A6.
Þó svo Porsche hafi uppi áform um að hætta að bjóða bíla sína með dísilvélum á það sama ekki við um systurfyrirtækið Audi. Audi er nefnilega að hugleiða að bjóða næstu kynslóð Audi S6 og S7 bíla sinna með dísilvélum. Audi hefur náð mikilli sölu á SQ5 og SQ7 bílum sínum sem búnir eru öflugum dísilvélum, en SQ5 var fyrsti bíll Sportdeildar Audi sem búinn var dísilvél og því var fylgt eftir með því að bjóða SQ7 jeppann með enn öflugri 435 hestafla dísilvél. BMW býður einnig M550d xDrive bíl sinn með öflugri dísilvél og selst hann líka vel. Stutt er víst í það að Audi muni sýna nýja kynslóð A6 og A7 bíla sína og verða öflugri S-gerðir þeirra fyrst í boði með bensínvélum og svo er líklegt talið að þeir verði einnig í boði með öflugum dísilvélum. Ef af því verður er ekki líklegt að V8 TDI vélin úr Audi SQ7 verði í S6 og S7 bílunum þar sem hún er of stór fyrir þá og kemst einfaldlega ekki fyrir í þeim. Líklegra er að 3,0 lítra bi-TDI V6 vélin verði í þeim, en nú er sú vél 326 hestöfl, en líklegt má telja að Audi útbúi hana í enn öflugri búningi.
Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent