Hvernig kemst ég hjá því að borða of mikið á aðventunni? Jóhanna E. Torfadóttir skrifar 14. desember 2017 11:00 Jóhanna E. Torfadóttir næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum
Lesendum Vísis og Fréttablaðsins gefst kostur á því að senda sérfræðingum spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á netfangið heilsanokkar@frettabladid.is. Í hverri viku birtast svör við völdum spurningum í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Spurning: Hvernig kemst ég hjá því að borða of mikið á aðventunni? Svar: Of mikil fjölbreytni og framboð á mat, eins og bíður okkar á jólahlaðborði, eykur líkur á að við borðum allt of mikið – við eigum einfaldlega erfiðara með að hafa stjórn á okkur þegar úrvalið er mikið. Áfengisneysla fyrir máltíð eykur líka matarlystina og gefur auka hitaeiningar. Það getur verið lúmskt hvað hollar fæðutegundir eins og þurrkaðir ávextir og hnetur eru orkuríkar og mætti því borða þær í hóflegu magni (lófafylli). Þetta gildir sérstaklega fyrir einstaklinga í kyrrsetuvinnu. Trefjarík matvæli auka á seddutilfinninguna og því tilvalið að notfæra sér það fyrir uppskriftir (kökur og pítsubotn). Dæmi um breytingar á uppskriftum til að gera þær hollari og trefjaríkari: Nota heilhveiti eða grófmalað spelt á móti hveiti í uppskriftinni. Fínt er að miða við 50:50 hlutföll.Nota eplamauk eða stappaðan banana á móti sykri í uppskriftinni. Þannig er hægt að minnka sykurmagnið um a.m.k. helming. Einnig má minnka sykurinn í uppskriftinni án þess að bæta nokkru á móti. Nota jurtaolíu í staðinn fyrir smjör eða smjörlíki (1 dl fyrir 100 g) – mjúk fita er ávallt betri valkostur en hörð fita. Best er að sneiða sem oftast hjá sykurríkum matvælum eins og sælgæti, konfekti og sykruðum gosdrykkjum (t.d. jólaöli). Í staðinn mætti fá sér mandarínur, vínber, tómata og fleira í þeim dúr. Svo er mikilvægt að borða hóflega af söltu og/eða reyktu kjöti eða sleppa því alveg og gefa í staðinn ávöxtum, grænmeti og baunum gott pláss á disknum.Niðurstaða: Þrátt fyrir annasama aðventu er mikilvægt að huga að reglulegum máltíðum og hreyfingu og minnka þannig líkur á ofáti. Einnig er gott að borða ríkulega af ávöxtum og grænmeti. Svo er bara að njóta.
Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tíu mínútna leiðin til að koma skipulagi á heimilið Sjá meira