Gufuruglað lið Þórarinn Þórarinsson skrifar 26. janúar 2018 07:00 Tóbaksreykingar eru banvænar og almennt frekar illa þokkaðar. Samt reykir fólk. Einfaldlega vegna þess að það er ógeðslega gott og ýkt töff að reykja. Humphrey Bogart, mesti töffari allra tíma, er sönnun þess. Dó að vísu aðeins 57 ára. Úr töffi. Reykingar auðga líka andann og örva sköpunargáfuna. „Fáðu þér smók og sopa af kók og sjúgðu' í þig kosmíska krafta.“ Ekki ljúga þjóðskáldin í Stuðmönnum. Þarfir efnis og anda fara því miður ekki alltaf saman og reykingar gera líkamanum ekkert gott. Því er heppilegast að reykja á meðan maður er upp á sitt besta og hætta um þrítugt. Ég er löngu fallinn á tíma og neyðist til að hætta. Hægara sagt en gert samt eins og allir vita sem reynt hafa. Þjáningar fráhvarfanna blikna þó samanborið við niðurlæginguna sem fylgir því að hætta að vera töff. Reykleysið er þó hverg nærri jafn hallærislegt og að reyna að bæta það upp með því að „veipa“ með þessum kjánalegu gufuvélum. Líta út fyrir að vera að bryðja handverkfæri eða heimilistæki, hjúpaður andstyggilega angandi þokuskýi svo gufuhausinn virðist helst standa í ljósum logum. „Veiparar“ eru plága á reykingafólki, úðandi ilmgufum sínum yfir skilgreind reykingasvæði þannig að manni líður eins og í nýmóðins gasklefa þar sem boðið er upp á Zyklon B með jarðarberjabragði. Segir allt sem segja þarf um hversu glatað þetta er þegar reykingafólk er farið að kvarta undan loftmengun. Skaðsemi sígarettunnar liggur ljós fyrir. Einhver áhöld eru um skaðleysi „veipsins“ en við skulum ekki útiloka að það sé hægt að deyja úr hallærislegheitum, rétt eins og töffi. Að reykja eða ekki reykja, þar er efinn. Möguleikarnir eru ekki fleiri. Nema fyrir skyni skroppna plebba. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þórarinn Þórarinsson Mest lesið Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson Skoðun Halldór 20.12.2025 Halldór Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun