Langaði bara að syngja Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. febrúar 2018 07:00 Íris Björk býst við að fara til Þýskalands eftir söngnámið hér á landi því þar er óperuheimurinn. Visir/anton
Innst inni var alltaf draumur minn að verða söngkona og ég fór loks að mennta mig í því fyrir fjórum árum. Byrjaði aðeins í verkfræðinámi en áttaði mig fljótt á að mig langaði bara að syngja,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir sem nýlega var valin rödd ársins í söngkeppninni Vox Domini sem nemendur á klassíska sviðinu taka þátt í. Íris Björk er í Listaháskólanum á fyrsta ári en hóf söngnámið í Söngskóla Sigurðar Demetz hjá Valgerði Guðnadóttur, var eitt ár hjá Diddú og aðalkennarar hennar í Listaháskólanum eru Þóra Einarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir og Kristinn Sigmundsson, auk þess sem Ólöf Kolbrún Harðardóttir kemur aðeins að kennslunni, svo óhætt er að segja að hún hafi alla tíð verið í góðum höndum. Hún rifjar upp fyrsta skiptið sem hún kom fram opinberlega. „Ég átti heima úti í Svíþjóð þar til ég var fjórtán ára og byrjaði að spila þar á blokkflautu fimm ára. Held ég hafi spilað fyrst í doktorsveislunni hjá mömmu, þá spilaði ég Vorið eftir Vivaldi á flautuna. Næsta verkefni Írisar Bjarkar er í Óperudraugnum sem verður frumsýndur um næstu helgi, þar kveðst hún vera í smáhlutverki og í kórnum. „Svo syng ég í Langholtskirkjukórnum og Graduale Nobili og syng stundum einsöng í kirkjunni. Ég vakna syngjandi og sofna syngjandi.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Lífið Nýr Rambo fundinn Bíó og sjónvarp Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Tónlist Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira