Ólafía úr leik í Phoenix 17. mars 2018 09:28 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Bank of Hope Founders Cup-mótinu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi. Ólafía náði sér ekki á strik á öðrum keppnisdegi í nótt og spilaði á fjórum höggum yfir pari. Hún hafnaði meðal neðstu keppenda mótsins á sex höggum yfir pari samtals. Ólafía fékk tvo fugla og tvo skolla en það voru 17. og 18. holan sem gerðu henni mikinn grikk. Ólafía fékk skramba á báðum sem gerðu endanlega út um vonir hennar um að komast áfram á mótinu. Ólafíu gekk þó betur að slá af teig á öðrum keppnisdegi en þeim fyrsta. Hún hitti braut í tíu af fjórtán skiptum og kom sér á flöt í réttum höggfjölda í fjórtán skiptum af átján. Pútterinn virðist hins vegar hafa svikið hana í þetta skiptið þar sem hún púttaði alls 35 sinnum á öðrum keppnishring. Næsta mót hennar verður Kia Classic-mótið sem fer fram í Carlsbad í Kaliforníu í næstu viku.
Golf Tengdar fréttir Ólafía gerði sér erfitt fyrir á síðustu holunni Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, kastaði frá sér góðri stöðu á lokaholunni á Bank of Hope Founders Cup í Phoenix, en þetta er þriðja LPGA-mót Ólafíu þetta tímabilið. 15. mars 2018 21:24 Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Ólafía gerði sér erfitt fyrir á síðustu holunni Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, kastaði frá sér góðri stöðu á lokaholunni á Bank of Hope Founders Cup í Phoenix, en þetta er þriðja LPGA-mót Ólafíu þetta tímabilið. 15. mars 2018 21:24